26.10.2020
Við ætlum að halda uppá Hrekkjavökuna í Suðurnesjabæ og hvetjum alla íbúa til þess að taka þátt.
Skólarnir okkar, foreldrar, bókasöfn, bæjarskrifstofur, nemendaráðin og félagsmiðstöðvar hafa m.a. tekið sig saman og ætla í sameiningu að bjóða uppá fjölbreytta dagskrá. Í stað þess að ganga hús úr húsi hvetjum við íbúa til þess að taka þátt í sínu eigin bingói, kíkja á bókasafnið, fara í Hrekkjavökugöngutúra og fleira skemmtilegt sem ekki krefst snertingar eða mikillar nálægðar. Þá eru fjölskyldur einnig hvattar til þess að gera sér glaðan dag saman.
Lesa meira
22.10.2020
Mikið er rætt um D-vítamín þessa dagana og það ekki að ástæðulausu. Hver rannsóknin á fætur annarri síðustu áratugi hefur sýnt að Íslendingar fá allt of lítið af þessu mikilvæga vítamíni úr fæðunni og að styrkur D-vítamíns í blóði þeirra sem hvorki taka lýsi né önnur fæðubótarefni er töluvert undir viðmiðunarmörkum. Mikilvægt er að taka D-vítamín yfir dimmustu mánuði ársins.
Lesa meira
16.10.2020
Starfsfólk og nemendur Sandgerðisskóla tóku að sjálfsögðu þátt í bleikum föstudegi. Margir mættu í bleikum klæðnaði eins og myndir sýna og nýttu kennarar tækifærið til fræðslu um krabbamein.
Lesa meira
15.10.2020
Við viljum benda á Fræðslugátt Menntamálastofnunar en þar er allt rafrænt námsefni stofnunarinnar aðgengilegt á einum stað.
Fræðslugáttin er aldursskipt og veitir aðgang að fjölmörgum rafbókum, hljóðbókum, vefum og fræðslumyndum sem auðvelt er að nálgast.
Lesa meira
13.10.2020
Tímarit Heimilis og skóla sem gefið var út á haustmánuðum er aðgengilegt á netinu. Þar er að finna ýmsan fróðleik sem við vonumst til að sem flestir geti nýtt sér.
Lesa meira
13.10.2020
Mánudaginn 19. október og þriðjudaginn 20. október er vetrarfrí í Sandgerðisskóla.
Kennsla hefst að nýju miðvikudaginn 21. október samkvæmt stundaskrá.
Starfsfólk skólans vonar að nemendur og fjölskyldur þeirra hafi það gott í fríinu.
Lesa meira
12.10.2020
Nemendur í 4. bekk eru um þessar mundir að vinna með bókina Bróðir minn ljónshjarta í byrjendalæsi. Nemendur gerðu tengslatré um persónur sögunnar til þess að fræðast meira um þær og tengsl þeirra í sögunni.
Lesa meira
09.10.2020
Í tilefni heilsuvikunnar var lögð extra áhersla á hollar og góðar uppskriftir í heimilisfræðitímum.
Á meðfylgjandi myndum má sjá nokkra nemendur að verki og ávallt skemmtilegt að fylgjast með þeim blómstra í tímum.
Lesa meira
09.10.2020
Á þriðjudaginn tók Sandgerðisskóli þátt í Ólympíuhlaupinu (áður Norræna skólahlaupinu). Hlaupið er haldið ár hvert í öllum skólum á Norðurlöndunum og er það haldið til að hvetja nemendur til aukinnar hreyfingar. Á yngsta stigi hljóp 5. bekkur mest en hann fór að meðaltali 7,1 km á mann, en á eldra stigi hljóp 10. bekkur mest, eða 7,3 km að meðaltali á mann. Oliver Þór og Jezreel Mitas hlupu báðir meira en rúma 18km og eru því Skólahlaupameistarar Sandgerðisskóla árið 2020.
Lesa meira