Vorferð 9. bekkjar

Nemendur 9. bekkjar fóru í sína árlegu vorferð þann 25.- 27. maí sl.
Fyrsti áfangastaður var Hveragerði þar sem nemendur fóru í alls konar leiki og hópefli, zipline rólu, pizzuveislu á Ölverki, á hestbak og í paintball. Gist var svo á Hjarðarbóli. Dagurinn heppnaðist vel og skemmtu nemendur sér konunglega. Í Vestmannaeyjum var farið að spranga, í sund, rútuferð um eyjuna, hjólaferð á E-trike hjólum og göngu yfir hraunið sem endaði á safninu Eldheimar.
Ferðin gekk eins og í sögu þrátt fyrir leiðinlegt veður í Vestmannaeyjum og stytta þurfti ferðina um eina nótt. Nemendur 9. bekkjar vilja þakka þeim sem styrktu þá fyrir ferðina kærlega fyrir stuðninginn.

Kveðja árgangur 2006 Sandgerðisskóla.