- Fréttir
- Skólastarfið
- Nemendur og Foreldrar
- Myndir
- Starfsfólk
- Um Skólann

Stoðþjónustu er að mestu sinnt innan skólans fyrir nemendur er þess þurfa. Á þetta bæði við um nemendur með námsörðugleika og bráðgera nemendur.
Stoðþjónusta fer ýmist fram innan bekkjarins eða utan hans. Innan bekkjar vinna nemendur t.d. einir eða í smærri hópum en þjónusta utan bekkjar er vinna í formi smánámskeiða til dæmis í félagsfærni, reiðstjórnun, kvíðastjórnun eða sértækum námsstuðningi.
Foreldrar eru hafðir með í ráðum ef fyrirhugað er að veita nemendum stoðþjónustu og er slíkt ávallt sett fram af ígrundun, fagmennsku og með þarfir nemandans að leiðarljósi.
Mennta- og tómstundasvið Suðurnesjabæjar veitir stuðning við skólastarf, nemendur og foreldra. Á Mennta- og tómstundasviði starfa kennsluráðgjafar, sálfræðingur og talmeinafræðingur. Undir sviðið tilheyra allir leik- og grunnskólar Suðurnesjabæjar og Sveitarfélagsins Voga.
Teymi sérfræðinga innan skólans
Stoðteymi skólans er skipað deildastjóra stoðþjónustu, námsráðgjafa, þroskaþjálfa, nemendaráðgjafa, umsjónarmanni Miklagarðs, deildastjóra Ásgarðs, verkefnisstjóra Riddaragarðs og kennurum Þjóðgarðs auk þess sem sérfræðingar geta kallað aðra starfsmenn skólans til funda og ráðgjafar. Teymið hittist þegar þörf er á og vinnur að velferð nemenda innan skólans. Teymið skipuleggur, fer yfir og tryggir þjónustu við nemendur sem þurfa á stoðþjónustu að halda samkvæmt þeirra mati.
Kennsluráðgjöf, námsráðgjöf og nemendaráðgjöf
Kennsluráðgjöf er hluti af skólaþjónustu Suðurnesjabæjar og veitir faglegan stuðning. Markmið kennsluráðgjafar er að efla gæði náms og kennslu, styðja við fjölbreyttar þarfir nemenda og stuðla að farsælu skólastarfi. Kennsluráðgjafi veitir skólastjórnendum, kennurum og öðru starfsfólki ráðgjöf og handleiðslu vegna kennsluhátta, námsaðlögunar og stuðningsúrræða. Einnig kemur kennsluráðgjafi að málefnum nemenda með sérþarfir og nemenda með annað móðurmál en íslensku, eftir því sem við á.
Skólasálfræðingur
Viðvera skólasálfræðings er að jafnaði einn dagur í viku yfir skólaárið. Sálfræðingi Mennta- og tómstundasviðs er ætlað að tryggja að sálfræðileg þekking nýtist í skólastarfi. Hann sér um greiningu þroska- og atferlisfrávika og ráðgjöf við skóla og foreldra vegna frávika í þroska eða hegðunarerfiðleika barna í leik- og grunnskólum. Hann sér um sálfræðigreiningar og ráðgjöf vegna barnaverndarmála og veitir fjölskyldu og félagsþjónustu aðstoð vegna slíkra mála sé eftir því óskað.
Talmeinafræðingur
Talmeinafræðingur er hluti af skólaþjónustu Suðurnesjabæjar. Hægt er að vísa nemendum sem þess þurfa til meðferðar og/eða greiningar hjá honum í samvinnu við foreldra.
Náms- og starfsráðgjöf
Náms- og starfsráðgjafi er starfandi, í hlutastarfi við skólann. Hlutverk hans er að standa vörð um velferð allra nemenda, styðja þá og liðsinna í málum sem varða námið, líðan þeirra í skólanum og fleira. Námsráðgjafi er trúnaðarmaður og málsvari nemenda.
Bæklingar frá ADHD samtöknumum sem starfsfólk skólans vill benda á:
Fyrir áhugasama þá er gagnlegt að skoða heimasíðu ADHD samtakanna ADHD.is /heimild: adhd.is