Hnetulaus skóli

Hnetulaus skóliÍ Sandgerðisskóla eru nokkrir nemendur með bráðaofnæmi fyrir hnetum. Mikilvægt er að við öll tökum tillit til þeirra þar sem hnetur geta valdið hættulegum ofnæmisviðbrögðum. Frá og með deginum í dag, 3. nóvember 2020 er Sandgerðisskóli hnetulaus skóli og má því enginn koma með nesti sem inniheldur hnetur. Dæmi um slíkt er: hnetujógúrt, abt mjólk með hnetumúsli, brauð með hnetusmjöri, hnetur í poka, alls kyns orkustykki, sumar brauðtegundir, morgunkorn og fleira.