Árshátíð 7. - 10. bekkjar

Fimmtudaginn 7. apríl 2022 verður árshátíð 7. - 10. bekkjar Sandgerðisskóla haldin á sal skólans.

Húsið opnar kl. 19:15 en skemmtunin hefst stundvíslega kl. 19:30.
Foreldrar/forráðamenn eru hvattir til að koma og horfa á skemmtiatriðin.
Börn yngri en 12 ára (6. bekk) verða að vera í fylgd með fullorðnum á meðan atriðin eru og fara heim með þeim að atriðum loknum.  
 
Eftir skemmtidagskrá verður dansleikur fyrir nemendur í 7. -10. bekk.  
.    Aðgangseyrir á ballið er 1000 krónur  
.    Auddi og Steindi henda í lauflétt gigg  
.    DJ Curly heldur uppi stuðinu á ballinu sem lýkur kl. 23:00.  
.    Myndakassi verður á staðnum Selfie
.    Skýjaborg verður með sjoppu, ATH að það er ekki posi á staðnum.  
 
Hefðbundið skólahald fellur niður þennan dag hjá nemendur í 7. - 10. bekk.

Nemendur mæta kl.10:05 föstudaginn 8. apríl og skóla lýkur um hádegi.

Eins og áður mæta nemendur unglingastigs Gerðaskóla kl. 20:30 og verða með á ballinu.