Fræðsluráð

Í hverju sveitarfélagi skal í umboði sveitarstjórnar vera skólanefnd sem fer með málefni grunnskóla eftir því sem lög og reglugerðir ákveða og sveitarstjórn eða sveitarstjórnir kunna að fela henni. 

Skólanefnd skal kosin af hlutaðeigandi sveitarstjórn í upphafi hvers kjörtímabils. Um kosningu í skólanefnd og starfshætti fer samkvæmt sveitarstjórnarlögum og samþykktum viðkomandi sveitarfélags. Varamenn í skólanefndum skulu vera jafnmargir aðalmönnum og kosnir á sama hátt. 

Skólastjórar, grunnskólakennarar og foreldrar í sveitarfélagi kjósa hver úr sínum hópi aðal- og varamann til setu á skólanefndarfundum með málfrelsi og tillögurétt

Hlutverk fræðsluráðs er:

  • Að hafa faglega umsjón með málefnum bókasafns, grunnskóla, leikskóla, og tónlistarskóla og fylgjast með því að þær vinni að settum markmiðum, í samræmi við lög, reglugerðir og kjarasamninga og veiti góða þjónustu.
  • Að gera tillögur til bæjarstjórnar um stefnu og markmið í fræðslu- og menntamálum fyrir bókasafn, grunnskóla, leikskóla og tónlistarskóla.
  • Að hafa eftirlit með því að stefna sveitarstjórnar á hverjum tíma í fræðslu- og menntamálum sé haldin
  • Að gera tillögur um úrbætur í þeirri starfsemi sem undir ráðið heyrir.
  • Að vinna að verkefnum í fræðslu- og menntamálum sem bæjarstjórn felur ráðinu.
  • Að vera bæjarstjórn að öðru leyti til ráðgjafar í fræðslu- og menntamálum.

Fræðsluráð Suðurnesjabæjar

Aðalmenn: 

  • Úrsúla María Guðjónsdóttir, formaður 

  • Elvar Þór Þorleifsson

  • Elín Björg Gissurardóttir

  • Jónína Magnúsdóttir

  • Sunna Rós Þorsteinsdóttir

Varamenn: 

  • Sigfríður Ólafsdóttir

  • Eydís Ösp Haraldsdóttir

  • Jónatan Már Sigurjónsson

  • Júdit Sophusdóttir

  • Sigurbjörg Ragnarsdóttir 

 

Smellið hér til að lesa fundargerðir Fræðsluráðs