Skólapeysur og buxur jólin 2021

Það er hægt kaupa vinsælu skólapeysurnar og einnig buxur frá nemendaráði nú fyrir jólin. Peysurnar eru alveg eins og peysurnar frá síðasta skólaári en buxurnar verða í boði í dökkbláar og gráar. Boðið verður upp á að koma í skólann, máta og panta peysur föstudaginn 26. nóvember kl. 12:10-15:00 og á mánudaginn 29. nóvember kl. 14:30-17:00

Peysurnar eru af gerðinni Russell, dökkbláar og með hvítri áletrun eða ljósblár með hvítri áletrun eins og sést á meðfylgjandi myndum. Ártalið 1938 er aftan á peysunum, en það ár hóf skólinn starfsemi. Nafn skólans stendur á hægri ermi og svo verður nafn nemandans framan á peysunni. Buxurnar verða með ártalið prentað lárétt rétt fyrir neðan vasaop. Öllum nemendum skólans, frá 1. til 10. bekk, býðst að kaupa peysu og buxur og kostar peysan kr. 6.000, en buxurnar kosta kr. 4000

Nemendaráð er ekki með posa og því þarf að greiða fyrir peysurnar með peningum eða með því að millifæra á reikning 0147-15-210102 kt. 671088-5229. Setja þarf nafn nemenda í skýringu og senda staðfestingarpóst á ornaevar@sandgerdisskoli.is.

Það er einnig er hægt að panta peysu með því að senda tölvupóst á ornaevar@sandgerdisskoli.is með upplýsingum um stærð, nafn barns, bekk og hvaða nafn á að prentast á peysuna. Í sama netfangi er einnig hægt að fá nánari upplýsingar.

Athygli er vakin á því að það verður að greiða fyrir peysurnar þegar þær eru pantaðar og áður en þær fara í prentun. Eftir 1. des er ekki hægt að tryggja að pöntunin verði komin fyrir jól. Stefnt er að því að flíkurnar verði afhentar fyrir jól.