Skólapeysur

Það er hægt kaupa vinsælu skólapeysurnar frá nemendaráði nú í upphaf skólaárs. Peysurnar eru með sama sniði og síðasta skólaár. Boðið verður upp á að koma í skólann, máta og panta peysur þriðjudaginn 22. ágúst kl. 8:30 - 16:00 við unglingainnganginn.

Peysurnar eru af gerðinni Gildan, svartar með hvítri áletrun eins og sést á meðfylgjandi myndum. Öllum nemendum skólans, frá 1. til 10. bekk, býðst að kaupa peysu og kostar hún kr. 6.500.

Nemendaráð er ekki með posa og því þarf að greiða fyrir peysurnar með peningum eða með því að millifæra á reikning 0147-15-210102 kt. 671088-5229. Setja þarf nafn nemenda í skýringu og senda staðfestingarpóst á ornaevar@sandgerdisskoli.is.

Það er einnig er hægt að panta peysu með því að senda tölvupóst á ornaevar@sandgerdisskoli.is með upplýsingum um stærð, nafn barns, bekk og hvaða nafn á að prentast á peysuna. Í sama netfangi er einnig hægt að fá nánari upplýsingar.

Athygli er vakin á því að það verður að greiða fyrir peysurnar í síðasta lagi 2. september. Eftir þá dagsetningu verður ekki hægt að panta eða greiða fyrir peysur.

Kær kveðja,

Nemendaráðið