Páskaleyfi

Föstudagurinn 8. apríl er tilbreytingadagur í skólanum og að loknum hádegisverði halda nemendur heim eða á Skólasel sem opnar fyrr þennan dag. Jafnframt er þetta síðasti skóladagur nemenda fyrir hefðbundið páskaleyfi.

Skólahald hefst að nýju samkvæmt stundatöflu þriðjudaginn 19. apríl.

Við minnum á að fimmtudagurinn 21. apríl er sumardagurinn fyrsti og er hann almennur frídagur.

Við óskum ykkur gleðilegrar páskahátíðar.
Starfsfólk Sandgerðisskóla