Íþróttadagur

Miðvikudaginn 30. september verður íþróttadagur skólans. Dagurinn er skertur nemendadagur samkvæmt skóladagatali og því dvelja nemendur skemur í skólanum en venjulega.

Nemendur mæta í skólann kl. 09:00 og skóladegi lýkur kl.11:40.

Hefðbundnir íþrótta- og sundtímar falla niður þennan dag.

Hádegisverður verður kl. 11:20. Nemendur fá samloku, safa og ávöxt.

Skólasel og Skýið opna að loknum skóladegi fyrir þá nemendur sem þar eru skráðir.