- Fréttir
- Skólastarfið
- Nemendur og Foreldrar
- Myndir
- Starfsfólk
- Um Skólann
Nemendur í 2. og 3. bekk í Sandgerðisskóla fengu heldur betur höfðinglega heimsókn á dögunum þegar rithöfundurinn Hendrikka Waage kom í heimsókn.
Í gegnum árin hefur 2. bekkur unnið ötullega með bækurnar um Rikku, sem ferðast á vit ævintýranna með töfrahringinn sinn til framandi staða á borð við Japan, Indland og víða um Ísland. Bækurnar eru stútfullar af fróðleik og hafa kveikt ríkulega í ímyndunarafli barnanna.
Hendrikka las upp úr einni af bókum sínum fyrir spennta nemendur, en sögurnar byggja á eigin reynslu hennar af því að búa og ferðast á þessum slóðum. Heimsókn Henrikku var sérstaklega ánægjuleg fyrir nemendur þar sem þau hafa á undanförnum árum unnið fjölbreytt verkefni tengd bókum hennar í Byrjendalæsi. Má þar nefna verkefni um Rikku og töfrahringinn í Indlandi, Rikku og töfrahringinn í Japan og Rikku og töfrahringinn á Íslandi, sem hafa veitt nemendum tækifæri til að kynnast ólíkum löndum, menningu og náttúru á skapandi og skemmtilegan hátt.


|
Skólastræti | 245 Suðurnesjabæ Sími á skrifstofu: 425 3100 Netfang: grunnskoli@sandgerdisskoli.is |
Skrifstofa skólans er opin frá á föstudögum til kl. 14:00 |
Tilkynningar um leyfi eða veikindi nemenda: 425 3100 / grunnskoli@sandgerdisskoli.is