Forvarnardagurinn í Sandgerðisskóla

Nemendur í 9. bekk Sandgerðisskóla tóku virkan þátt í Forvarnardeginum sem haldinn var um allt land þann 1. október síðastliðinn. Þema dagsins í ár var Samkennd, þar sem áhersla var lögð á mikilvægi þess að sýna bæði sjálfum sér og öðrum skilning, umhyggju og virðingu.

Dagurinn hófst á því að nemendur fylgdust með málþingi þar sem Halla Tómasdóttir, forseti Íslands, ávarpaði nemendur. Þar var meðal annars fjallað um mikilvægi samkenndar og hvernig hún getur stuðlað að betri samskiptum, aukinni vellíðan og sterkari tengslum milli fólks.

Að málþinginu loknu unnu nemendur saman í hópum og ræddu ýmsar spurningar sem tengdust forvörnum, líðan og heilbrigðum lífsstíl ungmenna. Meðal annars veltu þau fyrir sér hvað stuðlar að vellíðan, hvaða áskoranir börn og ungmenni standa frammi fyrir í dag og hvað í nærumhverfi þeirra getur haft verndandi áhrif. Svör nemenda voru síðan tekin saman og send til Embættis landlæknis.

Í svörum nemenda kom skýrt fram hversu mikilvægt þau telja að eiga góð tengsl við fjölskyldu og vini. Að hreyfing, nægur svefn og jákvæð sjálfsmynd skipti einnig gríðarlega miklu máli. Þau bentu jafnframt á áskoranir á borð við mikla símanotkun, áhrif samfélagsmiðla, einelti og skort á samveru. Nemendur lögðu einnig áherslu á mikilvægi þess að eiga trausta einstaklinga í kringum sig og hafa aðgang að fjölbreyttu íþrótta- og tómstundastarfi. Þá nefndu nemendur einnig að símabannið í skólanum hefði jákvæð áhrif á samskipti sín og líðan.

Nemendur unnu einnig plaggöt þar sem þau veltu fyrir sér hvað samkennd felur í sér og hvers vegna mikilvægt er að sýna hana í daglegu lífi. Þar komu meðal annars fram skilaboð um að setja sig í spor annarra, taka eftir líðan þeirra og muna að sýna sjálfum sér sömu umhyggju og við sýnum öðrum.

Með fréttinni fylgir samantekt á svörum nemenda ásamt myndum frá vinnunni á forvarnardegi.

Forvarnardagurinn

Forvarnardagurinn Forvarnardagurinn Forvarnardagurinn