Forvarnardagurinn

Forvarnardagur var haldinn miðvikudaginn 6. október í öllum 9. bekkjum landsins. Nemendur í 9. bekk Sandgerðisskóla tóku að sjálfsögðu fullan þátt í deginum. Stjórnendur og umsjónarkennarar héldu utan um dagskrá dagsins en að auki kom Elín Björg Gissurardóttir forstöðumaður Skýjaborgar og tók þátt í umræðum með nemendum um mikilvægi samverustunda með fjölskyldu, að stunda íþrótta- og tómstundastarf og um mikilvægi þess að halda sig frá áfengi og öðrum vímuefnum. Í meðfylgjandi myndböndum ræða þekktir einstaklingar um mikilvægi þátttöku í æskulýðs- og íþróttastarfi og  mikilvægi samverustunda fjölskyldunnar. Smellið hér til að horfa á myndbandið sem gert var 2016 og hér fyrir nýjasta myndbandið.

Með fréttinni fylgja svör nemenda sem áhugavert er fyrir foreldra að lesa yfir. Hægt er að hlaða því niður sem PDF skjali og einnig er hægt að smella á forsíðumynd til að lesa það í flettiriti.

Forvarnardagurinn_2021