- Fréttir
- Skólastarfið
- Nemendur og Foreldrar
- Myndir
- Starfsfólk
- Um Skólann
Nemendaráðið setti upp sitt árlega draugahús og bauð nemendur „velkomna“ í húsið síðastliðinn föstudag í tilefni af Hrekkjavöku. Allir nemendur skólans, eða að minnsta kosti þeir sem þorðu, fóru í gegnum húsið og komu margir skelkaðir út. Nemendaráðið stóð hræðsluvaktina frá kl. 8:00 til 14:00 þennan dag og stóð sig frábærlega.
Októbermánuður hefur verið mjög annasamur hjá nemendaráðinu. Mánuðurinn hófst á peysusölu á samskiptadegi þar sem nemendur skiptu með sér vöktum frá kl. 8:00 til 15:30. Í tilefni af Bleikum október stóðu þau einnig fyrir góðgerðarsöfnun og söfnuðu alls 300.000 kr. til kaupa á brjóstamyndatökutæki á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja (HSS).
Nú verður gaman að sjá hvað er næst á dagskrá hjá þessum duglegu nemendum.


|
Skólastræti | 245 Suðurnesjabæ Sími á skrifstofu: 425 3100 Netfang: grunnskoli@sandgerdisskoli.is |
Skrifstofa skólans er opin frá á föstudögum til kl. 14:00 |
Tilkynningar um leyfi eða veikindi nemenda: 425 3100 / grunnskoli@sandgerdisskoli.is