- Fréttir
- Skólastarfið
- Nemendur og Foreldrar
- Myndir
- Starfsfólk
- Um Skólann
Nemendaráð Sandgerðisskóla stóð fyrir fjáröflun á Bleika deginum í skólanum þann 22. október. Boðið var upp á kökusneiðar frá Sigurjónsbakaríi, safa og bleik gleraugu til sölu. Einnig voru bleikar derhúfur til sölu þetta árið.
Salan gekk mjög vel og söfnuðust alls 300.000 krónur. Að þessu sinni ætlar nemendaráðið að taka þátt í styrktarsöfnun fyrir brjóstamyndatökutæki á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja (HSS).
Nánari upplýsingar um styrktarsöfnunina má finna á heimasíðunni sar.is
Nemendaráðið þakkar öllum þeim sem tóku þátt í sölunni og er stolt af því að geta stutt við þetta mikilvæga málefni. 🩷
Smellið hér til að sjá myndir frá deginum.
|
Skólastræti | 245 Suðurnesjabæ Sími á skrifstofu: 425 3100 Netfang: grunnskoli@sandgerdisskoli.is |
Skrifstofa skólans er opin frá á föstudögum til kl. 14:00 |
Tilkynningar um leyfi eða veikindi nemenda: 425 3100 / grunnskoli@sandgerdisskoli.is