Vettvangsferðir í fjárhús

Frábær upplifun fyrir nemendur
Frábær upplifun fyrir nemendur

Nemendur í 1. - 6. bekk fóru í skemmtilegar vettvangsferðir nú í vikunni þar sem þeir heimsóttu fjárhúsin hjá Kjartani Dagssyni, Bjarka Dagssyni, Marinó í Hólkoti og Baldri í Bæjarskeri suður. Þar fengu nemendur að skoða nýfædd lömb og fylgjast með kindum sem áttu enn eftir að bera. Einnig fengu þeir að halda á nýfæddum lömbum og fræðast um umhirðu og lífshætti kindanna.

Það er ómetanlegt að hafa kost á því að bjóða nemendum uppá vettvangsferðir í nærsamfélaginu sem í fellst ákveðin grenndarkennsla sem er bæði skemmtileg og lærdómsrík. Við þökkum þeim frístundabændum kærlega fyrir okkur.

Vettvangsferð í fjárhúsin Vettvangsferð í fjárhúsin Vettvangsferð í fjárhúsin Vettvangsferð í fjárhúsin Vettvangsferð í fjárhúsin Vettvangsferð í fjárhúsin

Sjá skemmtilegar myndir frá bekkjunum, en þar má sjá suma nemendur halda á nýfæddu lambi.

🐏1. bekkur 

🐏2. bekkur

🐏3. bekkur

🐏4. bekkur

🐏5. bekkur

🐏6. bekkur