Opnað hefur verið fyrir umsóknir í frístundaheimili grunnskóla Suðurnesjabæjar fyrir nemendur í 1. – 4. bekk skólaárið 2025–2026. Markmið frístundaheimilanna er að hvert barn fái að njóta sín og þroskast í umhverfi sem einkennist af hlýju, öryggi og virðingu.
Sótt er um rafrænt í gegnum Vala. Þar er að finna hlekk á umsóknarkerfið Vala frístund.
Vala frístund er sjálfsafgreiðslukerfi þar sem hægt er að:
- sækja um vistun í frístundaheimili
- óska eftir breytingum á dvöl
- skrá frístundaakstur
- segja upp vistun
Eftir að umsókn hefur verið afgreidd berst boð um vistun í tölvupósti. Foreldrar þurfa að samþykkja boðið til að tryggja pláss barnsins.
Nánari upplýsingar á heimasíðu Suðurnesjabæjar