Tilkynning

Í ljósi blaðamannfundar sem er nýlokið þá fer nú af stað vinna í samráði við menntayfirvöld og Suðurnesjabæ við að útfæra það sem fram kom á fundinum.

Upplýsingar verða sendar út þegar við vitum meira en við biðjum foreldra/forráðamenn um að sýna því skilning að við þurfum að gefa okkur tíma til funda með okkar fólki og útfæra skólastarf samkvæmt nýjustu upplýsingum. Skólastjórnendur, ritari eða kennarar geta ekki gefið nánari upplýsingar að svo stöddu. Við sendum skilaboð til ykkar þegar útfærslur liggja fyrir.