Sýklafræðingar 🧫🔬

Í vikunni fóru nemendur í 8. bekk um skólann og tóku sýni af ýmsum stöðum til að kanna hvort hægt væri að rækta bakteríur úr þeim. Undirbúningurinn hafði verið vel unninn; nemendur höfðu þegar skilað skýrslugerð og ákveðið nákvæmlega hvaða staði ætti að rannsaka.

Á næstu vikum munu nemendur fylgjast með sýnunum og verður spennandi að sjá hvaða niðurstöður fást. Það er virkilega ánægjulegt að fylgjast með áhugasömum og duglegum nemendum við slíka vinnu, eins og sjá má á myndunum. Hver veit nema að í þessum flotta hópi leynist sýklafræðingur framtíðarinnar. 🧫🔬

Sýklafræðingar Sýklafræðingar

Sýklafræðingar Sýklafræðingar