Sumarlestur - Hvað ert þú að lesa?

Sumarlestur bókasafnins er nú hafinn og hvetjum við alla að vera duglega að lesa í sumar. Allir nemendur í 1. - 5. bekk fengu lestrardagbók með sér heim fyrir frí en þeir sem ekki eru enn komin með lestrardagbókina geta nálgast hana á bókasafninu. Allir sem taka þátt í sumarlestri fá verðlaun í lok sumars. Opnunartími bókasafnsins í sumar er eftirfarandi: Mánud. - Fimmtud. kl. 10 - 16. Sumarlæsisdagatal Menntamálastofnunar er góður stuðningur en það inniheldur 31 skemmtilega leið að lestri. Dagatalið ásamt öðrum fróðleik um sumarlestur má sjá á vef Menntamálastofnunar. Einnig má finna fræðslu til foreldra á vefnum  Lesum meira Gleðilegt lestrarsumar ?