- Fréttir
- Skólastarfið
- Nemendur og Foreldrar
- Myndir
- Starfsfólk
- Um Skólann
Bókasafn Suðurnesjabæjar býður börnum á grunnskólaaldri að taka þátt í sumarlestri á bókasafninu frá 20. maí – 20. ágúst.
Það má byrja hvenær sem er á þessu tímabili.
Í ár verður sumarlesturinn með tvennskonar þema: Geimlestrarleiðangurinn og Ferðalag með Gúnda geithaf. Dregnir verða út vinningar á 2 vikna fresti úr happamiðum sem þátttakendur hafa skilað á safnið.
Lokahátíð í sumarlestrinum verður haldin í upphafi Vitahátíðar þann 24. ágúst á bókasafninu.
Hvernig á að skrá sig: þau börn sem vilja taka þátt koma á Bókasafn Suðurnesjabæjar við Suðurgötu í Sandgerði þar sem þau skrá sig með samþykki foreldra og fá leiðbeiningar, happamiða og fleira sem tilheyrir sumarlestrinum. Það kostar ekkert að vera með í sumarlestri.
Bókasafnið er í samstarfi við Bókasafn Reykjanesbæjar um Geimlestrarleiðangurinn og er sá hluti sumarlestursins styrktur af Uppbyggingarsjóði Suðurnesja.
Bókasafnið er opið mánudaga til fimmtudaga frá kl. 10 til 17:30 og föstudaga frá kl. 10-12.

|
Skólastræti | 245 Suðurnesjabæ Sími á skrifstofu: 425 3100 Netfang: grunnskoli@sandgerdisskoli.is |
Skrifstofa skólans er opin frá |
Tilkynningar um leyfi eða veikindi nemenda: 425 3100 / grunnskoli@sandgerdisskoli.is