- Fréttir
- Skólastarfið
- Nemendur og Foreldrar
- Myndir
- Starfsfólk
- Um Skólann
Sumarfrístund fyrir börn fædd 2020
Sumarfrístund fyrir börn fædd árið 2020, sem hefja nám í 1. bekk haustið 2026, opnar mánudaginn 10. ágúst og verður starfrækt bæði í Gerðaskóla og Sandgerðisskóla. Frístundaheimilin verða opin frá 10. ágúst til skólasetningar og er ætluð tilvonandi 1. bekkingum. Markmið sumarfrístundar eru m.a. að brúa bilið milli leik- og grunnskóla, að börnin fái tækifæri til að kynnast sínum skóla og nærumhverfi hans með það að leiðarljósi að auka öryggi og vellíðan við upphaf grunnskólagöngunnar.
Skráning fer fram í gegnum vala.is, mikilvægt að velja vetur og velja tímabil sumarfrístund 2026 en þessi skráning er óháð almennri skráningu í frístundaheimili eftir að skólastarf hefst. Mikilvægt er að skrá börnin í síðasta lagi fyrir 5. ágúst.
Opnunartími er frá kl. 09:00 – 15:00* og er hádegismatur og síðdegisnesti innifalinn.
Opið frá 12:00-15:00 18. ágúst vegna starfsdags grunnskólans ekki hádegismatur þann daginn.
Gjaldskrá fyrir tímabilið 10. – 21. ágúst 2026
Frístund í 10 daga frá kl. 09:00 – 15:00 og verð 24.900 kr.
|
Skólastræti | 245 Suðurnesjabæ Sími á skrifstofu: 425 3100 Netfang: grunnskoli@sandgerdisskoli.is |
Skrifstofa skólans er opin frá |
Tilkynningar um leyfi eða veikindi nemenda: 425 3100 / grunnskoli@sandgerdisskoli.is