Starfið hefur farið vel af stað hjá okkur hér í Sandgerðisskóla .

Starfið hefur farið vel af stað hjá okkur hér í Sandgerðisskóla .
Í ljósi ástandsins í samfélaginu er aðalverkefni okkar að halda uppi daglegu skólastarfi fyrir nemendur frá morgni og fram eftir degi. Við sem vinnum hér í skólanum förum í einu og öllu eftir tilmælum almannavarna sem gilda fyrir grunnskóla og leggjum þannig okkar af mörkum til að láta þetta ganga sem best. Engu að síður getur allt gerst og við erum viðbúin því.
 
Við viljum vekja athygli ykkar á því að skólinn er lokaður öðrum en starfsfólki og nemendum bæði á skólatíma og utan hans. Foreldrar og aðrir utanaðkomandi mega ekki koma inn í skólahúsið en við höfum þó gert örfáar undantekningar á því með sóttvarnir í forgrunni.
 
Samtalsdagur er framundan og að þessu sinni verða samtöl aðallega tekin í síma eða í fundarforritum í gegn um tölvu. Kennarar munu verða í sambandi við ykkur.
 
Yngstu börnin eru í frístund eftir skóla og þar gildir það sama og í skólastarfinu. Foreldrar eiga ekki að koma inn á Skólasel þegar þeir sækja börnin, starf getur fallið niður vegna forfalla og börn eiga ekki að mæta séu þau með einkenni.
 
Það eru tilmæli frá almannavörnum um að börn sem eru með einhver einkenni COVID-19 eigi að vera heima (hósti eða hiti eða beinverkir já eða allt í bland). Brýnið fyrir börnunum ykkar að þvo sér og spritta.
 
Við þurfum öll að hjálpast að við á láta þetta ganga vel. Það skiptir mestu máli að nemendur geti mætt í skólann. Takið upp símann ef þið þurfið að ræða eitthvað mikilvægt við okkur og/eða sendið tölvupóst ef það eru upplýsingar sem þið þurfið að koma á framfæri.
 
Við klárum þetta saman með jákvæðnina að leiðarljósi!
 
Hólmfríður, Bylgja, Fríða og Margrét