Slæm veðurspá

Upp úr kl. 12:00 í dag skellur á mikið hvassviðri og ofankoma. Við hvetjum foreldra til að huga að því að sækja börn sín í skólann og frístund áður en færð spillist. Við minnum á að skólinn er öruggt skjól fyrir börnin en mikilvægt að foreldrar geri ráðstafanir, að börn verði sótt í skólann/frístund þegar skóladegi lýkur, fyrr eða síðar ef það hentar betur. 

Hægt að sækja um leyfi á ritari@sandgerdisskoli.is eða hringja í skólann 425-3100/ Netfangið hjá Skólasel er heida@sandgerdisskoli.is