Skólastarf hjá nemendum hefst aftur á morgun að loknu jólaleyfi

Ljósmynd, Bylgja Baldursdóttir
Ljósmynd, Bylgja Baldursdóttir

Starfsfólk Sandgerðisskóla óskar nemendum,foreldrum/forráðamönnum gleðilegs nýs árs! 

Megi komandi ár verða okkur öllum farsælt og gjöfult í leik og starfi.

Skólastarf hjá nemendum hefst aftur að loknu jólaleyfi á morgun miðvikudaginn 4. janúar 2023, samkvæmt stundaskrá.

Við viljum minna ykkur á að nota sleppistæðið við Suðurgötu þegar þið keyrið börnum ykkar í skólann. Það eru þrjú skammtímastæði ef þarf. Ekki er leyfilegt að keyra inn á innra bílastæði norðan við skólann sem er einungis ætlað fyrir starfsmenn. Vegna mikilla snjóskafla í bæjarfélaginu viljum við brýna fyrir ökumönnum að fara varlega og taka tillit til barna sem eru á leið í og úr skóla. Einnig viljum við minna á notkun endurskinsmerkja.