Skólastarf fellur niður þriðjudaginn 20. desember

Frá Aðgerðarstjórn Suðurnesjabæjar

Skipulagt skólahald Sandgerðisskóla fellur niður þriðjudaginn 20. desember 2022 vegna veðurs og færðar.

Fólk er hvatt til þess að fara varlega, ana ekki út í umferðina á illa útbúnum bílum og fylgjast með fréttum og tilkynningum frá Vegagerðinni og lögreglunni á Suðurnesjum.

Með kveðju, skólastjórnendur