Skólaslit og útskrift 10. bekkjar

Árgangur 2010
Árgangur 2010

Skólaslit Sandgerðisskóla fóru fram við hátíðlega athöfn á sal skólans 5. júní s.l.. Skólaslitin voru þrískipt, 1. - 4. bekkur, 5. – 8. bekkur og því næst 9. bekkur og útskrift 10. bekkjar.

Á þessu skólaári stunduðu 305  nemendur nám við Sandgerðisskóla.

Á skólaslitum flutti kór Sandgerðisskóla lög undir stjórn Sigurbjargar Hjálmarsdóttur kórstjóra og Elsu Mörtu Ægisdóttur meðstjórnenda. Haukur Arnórsson sá um meðleik á píanó. Fyrra lagið sem kórinn flutti var: Ofurhetja -höfundur lags Shawna Edwards. Texti: Freydis Kneif  Kolbeinsdottir. Seinna lagið var Afrísk syrpa. Skólakórinn hefur verið starfandi við skólann í 18 ár. 

Foreldrafélagið veitti tveimur nemendum í hverjum árgangi viðurkenningu fyrir að vera jákvæður leiðtogi. Jákvæður leiðtogi er nemandi sem leggur sig fram við að mynda góðan bekkjarbrag, er góð fyrirmynd tjáir sig á bekkjarfundum og er með ríka réttlætiskennd.

Sorpeyðingarstöðin Kalka gaf bókarverðlaun fyrir góðan árangur í náttúrufræði á miðstigi.

Fjöldinn allur af viðurkenningum voru veittar fyrir árangur í ýmsum námsgreinum og fyrir þátttöku í Stóru upplestrarkeppninni, nemendaráði, skólaráði og skólahreysti.

Skólaárið einkenndist af fjölbreyttum verkefnum og áskorunum, Bylgja Baldursdóttir skólastjóri fór yfir skólaárið í ræðu sinni, hún sagði að skólaárið hafi heilt yfir gengið vel.

Að í maí hafi skólinn fengið þá stóru viðurkenningu að vera formlega orðin UNESCO skóli.  Viðurkenningin er staðfesting á því öfluga starfi sem unnið hefur verið innan skólans með sjálfbærni, heimsmarkmið sameinuþjóðana og alþjóðlega samvinnu að leiðarljósi. Við sem skóli erum afar stolt af þessari viðurkenningu

Skólastarfið okkar fór vel af stað með hefðbundinni kennslu, útihlaupi, útikennslu, vettvangsferðum, verkefnum vinabekkja, gönguferðum svo eitthvað sé nefnt. 

Nemendur í 7. bekk fóru á Reyki, 10. bekkur fór í vettvangsferð til Reykjavíkur, kórinn tók þátt í barnakóramóti og eldri nemendur kórsins tóku þátt í að syngja á Samfés í beinni útsetningu á RUV með Guðjóni Þorgils fyrrum nemanda skólans og meðlim skólakórsins. Auk þess fóru flestir nemendur í  vorferðir sl. vikur. 

Nemendur á unglingastigi skólans tóku þátt í barna og ungmennaþingi Suðurnesjabæjar, þar voru Lýðræðisleg vinnubrögð viðhöfð  eins og í alls ýmsum verkefnum á skólaárinu. Allir nemendur skólans tóku þátt í Barnamenningarhátíðinni Skelinni sem var haldinn í annað sinn í apríl og setti sinn svip á starfið með ljósabolta og ljóða og sögugerð. 

Nemendur skólans tóku þátt í Vitadögum, Göngum í skólann, Ólympíuhlaupi ÍSÍ, hrekkjavökunni og Lífshlaupinu þar sem Sandgerðisskóli lenti í 2. sæti fyrir þátttökufjölda, þá var öskudeginum gerð góð skil og kærleiksbirnirnir úr 10. bekk áttu frábæra innkomu.  

Nemendur 7. bekkjar tóku þátt í Stóru upplestrarkeppninni og nemendur í 4. bekk tóku nemendur þátt í litlu upplestrarkeppninni, við áttum öflug lið í Hreystikeppninni og enduðum við skólaárið á frábæru skólarokki þar sem nemendur nýttu mismunandi styrkleika sína við að leysa ýmsar þrautir og verkefni fyrir bekkinn sinn.  

Ekki má gleyma öllum skemmtilegu verkefnunum í söng,  leik og dansi í tengslum við árshátíðir skólans. Útskriftarhópur leikskólans og 1. og 2. bekkur voru með árshátíð þar vinátta var þema, 3. - 6. bekkur setti upp leiksýninguna Dýrabæ, sýningin var algjörlega frábær og  ekki má gleyma því að nemendur og starfsfólk lagði á sig mikla og óeigingjarna vinnu til þess að gera sýninguna óaðfinnanlega. 

Árshátíð eldri hefur sjaldan verið glæsilegri, þar sem nemendur sem og starfsfólk fóru á kostum í leik og dansi. 

Bylgja minnti á að skólastarf væri eins og keðja þar sem hver og einn hlekkur væri jafn mikilvægur sama hvort það væru nemendur, starfsfólk, aðstandendur og eða fólkið í grenndarsamfélaginu. Það stefna allir í sömu átt þ.e. að nemendur nái sem bestum árangri í lífi og starfi.

Þá talaði hún beint til nemenda þegar hún sagði: „Þið hafið staðið ykkur ótrúlega vel í vetur. Þið hafið tekist á við verkefni, sýnt frumkvæði, lært af mistökum og vaxið, bæði í námi og sem einstaklingar.

Þá minnti hún nemendur einnig á að hafa ávallt hugfast að vöxtur, virðing, vilji og vinátta leiðarljós skólans helst í hendur en krefst ákvörðunar ykkar um það hvernig þið nýtið ykkur það á hverjum degi. Að allir hafi náð framförum í vetur og aukið við félags þroska sinn, hver á sinn hátt og síðast en ekki síst lært enn betur að vera besta útgáfan af ykkur sjálfum. Eftir mikla og stranga vinnu í vetur þá er kominn tími til að slaka á og takast á við þau verkefni og það frí sem nú tekur við hjá ykkur. Þið verðið frjáls eins og fuglinn og getið notið ykkar leik og starfi í sumar og valið ykkur þau verkefni sem þið takið ykkur fyrir höndum. “.

Nemendaráð takk fyrir ykkar mikilvægu vinnu við skipulagningu á ýmsum uppákomum fyrir nemendur. Þið hefið staðið ykkur vel í vetur. 

Við útskrift 10. bekkjar ávörpuðu Einar Sveinn og Rakel Ósk umsjónakennarar nemendur og fóru yfir farin veg. Fyrir hönd útskriftarárgangsins fóru þau Bergþór Óli, Embla Ósk, Guðný Björg, Hafdís Sif, Kamilla Björk, Kristín Hrefna, Nikodem Ingi, Sunna Marie og Wiktoria Nut yfir skemmtileg atvik og sögur af skólagöngu árgangsins.

Kristín Hrefna Ásmundsóttir útskriftarnemi spilaði á píanó Verk: Pavane, Pour une infante défunte. Höf. Maurice Ravel 

Margréti Böðvarsdóttur lestrarömmu skólans var þakkað fyrir óeigingjarnt sjálfboðastarf við að efla nemendur á yngsta stigi í lestri. 

Tveir starfsmenn halda til annarra starfa og var þeim þakkað fyrir þeirra störf í þágu skólans.

Þá þakkaði hún foreldrafélagi skólans fyrir gott starf, það er í góðri samvinnu heimilis og skóla sem árangur nemenda næst. Einnig  þeim fjölmörgu félagasamtökum, fyrirtækjum, stofnunum og íbúum bæjarins fyrir góðvild í garð skólans. 

Að lokum ávarpaði Bylgja starfsfólk skólans og sagði:,, Takk fyrir ykkar ómetanlega starf. Þið eruð hjartað í skólanum. Það sem þið leggið til hvort sem það er í kennslustund, í frímínútum, á göngum  eða í stoðþjónustu skiptir öllu máli. Þið hafið áhrif á líf barna og unglinga langt umfram það sem stendur dagbók eða í námsskrá. 

Við stefnum öll í sömu átt þ.e. að nemendur nái árangri í lífi og starfi. Að hver og einn æfi sig í að vera besta útgáfan af sjálfum sér og geri betur í dag en í gær. 

Með vitnisburðinum fá nemendur sólmyrkvagleraugu að gjöf frá Suðurnesjabæ og kunnum við þeim bestu þakkir fyrir. Gleraugun á að nota 12. ágúst kl. 17:47 þegar almyrkvi verður en þá verður einstakt tækifæri fyrir okkur til að upplifa það náttúruundur sem Almyrkvi er. Það er líka ólíklegt að við sjáum almyrkva næst þegar hann verður hér í Suðurnesjabæ en það verður 26. maí 2245.

Að lokinni athöfn buðu foreldrar 10. bekkjar starfsfólki og nemendum til kaffisamsætis.

Smellið hér til að sjá myndir frá athöfninni.