Skólasetning Sandgerðisskóla

Bylgja Baldursdóttir, skólastjóri
Bylgja Baldursdóttir, skólastjóri

Skólasetning SandgerðisskólaÍ dag var Sandgerðisskóli settur í 84 sinn skólaárið 2022-2023 við hátíðlega athöfn á sal. Nýr skólastjóri, Bylgja Baldursdóttir bauð nemendur, forráðamenn, starfsfólk og skólasamfélagið allt velkomið til samstarfs. Hún hvatti nemendur til að taka vel á móti nýjum nemendum og fjölskyldum þeirra og minnti um leið á leiðarljós skólans en þau eru Vöxtur, virðing, vilji og vinátta. Að Sandgerðisskóli er uppbyggingarskóli og starfar eftir hugmyndafræðinni Uppeldi til ábyrgðar þar sem stefnt er að því að nemendur þekki sjálfan sig, tilfinningar sínar og þarfir, læri af mistökum sínum og hafi að markmiði að vera besta útgáfan af sjálfum sér í leik og starfi. Einnig voru nýir starfsmenn kynntir og boðnir velkomnir. Fram kom að á komandi skólaári væri lögð sérstök áhersla á að efla nemendur í læsi, þrautseigju og trú á eigin getu. Þá sagði hún frá verkefni sem á að leiða nemendur að auknu nemendalýðræði. Sandgerðisskóli er líka heilsueflandi grunnskóli og verða hin ýmsu verkefni tengd heilsueflingu í vetur. Nú eru 311 nemendur skráðir í skólann og er það fjölgun um 20 nemendur frá síðasta ári. Hún sagðist binda vonir við að komandi skólaár verði án samkomutakmarkanna og að nemendur geti mætt í skólann til að læra og efla félagsþroska sinn. Að fyrsta vikan í skólanum einkennist af uppbroti og gleði í kringum Suðurnesjabæjardaga bleiku og fjólubláu bæjarhátíðina okkar. Að loknu erindi skólastjóra héldu nemendur með umsjónarkennurum sínum og stuðningsfulltrúum í heimastofur þar sem farið var stuttlega yfir helstu áherslu atriði skólaársins og nýir nemendur kynntir. Ekki var annað að sjá en að nemendur væru kátir og glaðir, ánægðir að hitta vini sína og skólasystkin  og tilbúnir til að takast á við ný og spennandi verkefni á komandi skólaári.