Skólarokk eru árlegur viðburður í Sandgerðisskóla. Skólarokk eru tilbreytingardagar að vori, nú í ár líkt og síðustu ár var hver bekkur með sinn lit. Nemendur spreyttu sig á ýmsum þrautum, myndlist, sköpun, íþróttum, sundi, dansi, fatahönnun, hárgreiðslu, náttúrufræði, samfélagsfræði, stærðfræði, íslensku og ensku. Leikarnir snúast samt fyrst og fremst um samvinnu og gleði.
Dagarnir slá svo sannarlega í gegn og bíða sumir nemendur allt skólaárið eftir Skólarokki. Í ár voru Skólarokksmeistarar yngri bláa liðið og á eldri stigi bleika liðið. Skemmtilegar myndir af afrakstri nemenda má sjá hér.


