- Fréttir
- Skólastarfið
- Nemendur og Foreldrar
- Myndir
- Starfsfólk
- Um Skólann
Mikil gleði og keppnisandi ríkti í Sandgerðisskóla þegar hið árlega Skólarokk var haldið þriðjudag og miðvikudag. Skólarokk er einn af hápunktum vorsins þar sem nemendur fá tækifæri til að spreyta sig á fjölbreyttum verkefnum sem reyna á þekkingu, sköpun, samvinnu, útsjónarsemi og líkamlega færni.
Í Skólarokki keppir hver árgangur sem eitt lið og hefur sinn eigin lit. Yngri nemendur, 1. – 5. bekkur, keppa sín á milli og eldri nemendur, 6. – 10. bekkur, sín á milli. Stemningin var frábær þessa tvo daga þar sem nemendur hvöttu hvert annað áfram og lögðu sig fram í öllum verkefnum.
Keppnisgreinarnar voru fjölbreyttar að vanda. Nemendur kepptu meðal annars í fatahönnun, dans, hárgreiðslu, förðun, kökuskreytingu, borðhaldi, sundi, kafsundi, rennibrautakeppni, fótbolta, körfubolta, hlaupi, hreyfiþrautum og ýmsum smáþrautum. Þá var einnig keppt í fræðigreinum þar sem reyndi á kunnáttu í íslensku, ensku, stærðfræði, náttúrufræði og landafræði.
Að þessu sinni stóð svarta liðið, 5. bekkur, uppi sem sigurvegari í keppni yngri nemenda. Hjá eldri nemendum sigraði bleika liðið, 10. bekkur, eftir harða og skemmtilega keppni.
Skólarokk er orðinn fastur og kærkominn hluti af skólastarfinu, þar sem nemendur fá tækifæri til að sýna styrkleika sína á ólíkum sviðum.
Dagarnir í ár voru sérstaklega skemmtilegir og það sem vakti mesta athygli var hversu vel nemendur stóðu saman 🥰
Jákvæð samskipti, virðing og góður liðsandi einkenndu dagana og sýndu vel þau gildi sem Sandgerðisskóli leggur áherslu á í daglegu starfi.
Myndir frá Skólarokk yngri og Skólarokk eldri
|
Skólastræti | 245 Suðurnesjabæ Sími á skrifstofu: 425 3100 Netfang: grunnskoli@sandgerdisskoli.is |
Skrifstofa skólans er opin frá |
Tilkynningar um leyfi eða veikindi nemenda: 425 3100 / grunnskoli@sandgerdisskoli.is