Skólakórinn syngur fyrir leikskólanemendur

Skólakór Sandgerðisskóla, undir stjórn Sigurbjargar Hjálmarsdóttur og Elsu Mörtu Ægisdóttur, heimsótti leikskólann Grænuborg í gær. Kórinn söng bæði fyrir og með leikskólabörnunum og skapaðist yndisleg stemning þar sem allir tóku þátt af lífi og sál.

Við þökkum kærlega fyrir frábærar móttökur og skemmtilega samveru 🥰

Skólakór Skólakór

Skólakór