Skólakórinn söng með Guðjóni Þorgils á sviði í Laugardalshöll

Guðjón Þorgils ásamt skólakór Sandgerðisskóla
Guðjón Þorgils ásamt skólakór Sandgerðisskóla

Það var ógleymanleg stund þegar meðlimir úr eldri skólakórnum okkar stigu á svið í Laugardalshöll á Söngvakeppni Samfés og sungu með Guðjóni Þorgils Kristjánssyni, fyrrum nemanda Sandgerðisskóla og sigurvegara Söngvakeppni Samfés 2024, hann sigraði einnig nýverið Söngvakeppni framhaldsskólanna.

Börnin í skólakórnum, undir stjórn Sigurbjargar Hjálmarsdóttur og Elsu Mörtu Ægisdóttur, sungu bakraddir í laginu Skil ekki neitt í dómarahléi keppninnar. Við erum stolt af Guðjóni Þorgils og nemendum okkar sem stóðu sig öll með miklum glæsibrag og sýndu ótrúlegt hugrekki og þor, enda ekki sjálfgefið að stíga á svið í beinni útsendingu fyrir framan þúsundir áhorfenda. 🫶

Smellið hér til að sjá upptöku af flutningi Guðjóns Þorgils og skólakór Sandgerðisskóla, þá má einnig sjá flutninginn á RÚV Sarpinum,

Að lokum viljum við færa Guðjóni Þorgils okkar innilegar þakkir fyrir að bjóða kórnum að taka þátt í þessu skemmtilega og lærdómsríka verkefni. 🫶

Skólakór Sandgerðisskóla Skólakór Sandgerðisskóla

Skólakór Sandgerðisskóla 

Skólakór Sandgerðisskóla