Skólakór veturinn 2026-2027

Söngur - Vinátta - Leikir
Söngur - Vinátta - Leikir

Nú er opið fyrir skráningar í Skólakór Sandgerðisskóla fyrir skólaárið 2026-2027 og bjóðum við alla söngglaða nemendur velkomna!

Æfingatímar

Yngri kór (2.-4. bekkur)

  • Mánudagar kl. 13:15-14:15

Eldri kór (5. bekkur og eldri)

  • Þriðjudagar kl. 14:15-15:00 -  Athugið að æfingatími eldri kórs er birtur með fyrirvara um breytingar.

Skráning er hafin hjá Ingu ritara eða hjá Sigurbjörgu kórstjóra og Elsu Mörtu aðstoðarkórstjóra. Einnig er hægt að skrá sig í gegnum Facebook-síðu kórsins, Skólakór Sandgerðisskóla, þar sem nýir meðlimir geta óskað eftir aðgangi. 

Fyrsta æfingin verður mánudaginn 31. ágúst. 

Nánari dagskrá verður auglýst síðar.

Hlökkum til að sjá ykkur!

Með söngkveðju,

Sigurbjörg Hjálmarsdóttir Kórstjóri, og Elsa Marta Ægisdóttir Aðstoðarkórstjóri.