Skólakór veturinn 2023-2024

Söngur-vinátta-leikir
Söngur-vinátta-leikir

Í vetur hefjum við sextánda starfsár barnakórsins. Hvet alla sem elska að syngja í góðum hóp að vera með okkur.

  • Kóræfingar yngri kórs (2.- 4.bekkur) verða á mánudögum kl.13:15.  
  • Kóræfingar eldri kórs (5.bekkur og eldri) verða á miðvikudögum kl.13:55.

Við ætlum að syngja popp lög, söngleikjalög, þjóðlög og fleira úr ýmsum áttum, ásamt því að syngja í míkrafón fyrir þá sem vilja prófa.  Einnig fá kórmeðlimir að hafa áhrif á lagaval og þá finnum við eitthvað skemmtilegt í sameiningu. 

Skráning er hafin hjá Ingu ritara eða hjá Sigurbjörgu kórstjóra. Einnig er hægt að skrá sig á facebook-síðu kórsins. (skólakór sandgerðisskóla) nýir meðlimir geta beðið um aðgang.

Fyrsta æfingin verður mánudaginn 28. ágúst hjá yngri og miðvikudaginn 30. ágúst hjá eldri.

Nánari dagskrá verður auglýst síðar.

Hlakka til að sjá ykkur

Með söngkveðju,

Sigurbjörg Hjálmarsdóttir, kórstjóri,  sigurbjorg.h@sandgerdisskoli.is