Skólakór veturinn 2022-2023

Söngur-vinátta -leikir

Við hefjum fimmtánda starfsár barnakórsins í vetur! Hvet alla sem elska að syngja í góðum hóp að vera með okkur í vetur.  

Við ætlum að syngja popp lög, söngleikjalög, þjóðlög og fleira úr ýmsum áttum, ásamt því að syngja í míkrafón fyrir þá sem vilja prófa.  Einnig fá kórmeðlimir að hafa áhrif á lagaval og þá finnum við eitthvað skemmtilegt í sameiningu! :)

Kóræfingar yngri kórs (2.- 4.bekkur) verða á mánudögum kl.13:15. 

Kóræfingar eldri kórs (5.bekkur og eldri) verða á miðvikudögum kl.13:55.

Skráning er hafin hjá Ingu ritara eða hjá Sigurbjörgu kórstjóra. Einnig er hægt að skrá sig á facebook-síðu kórsins. (skólakór sandgerðisskóla) nýjir meðlimir geta beðið um aðgang.

Nánari dagskrá auglýst síðar.

Hlakka til að sjá ykkur!   

Með söngkveðju, Sigurbjörg Hjálmarsdóttir, kórstjóri.