Skólahópur í heimsókn hjá skólastjóra

Skólahópur leikskólans Sólborgar
Skólahópur leikskólans Sólborgar

Í dag kom skólahópur leikskólans Sólborgar í heimsókn til skólastjóra Sandgerðisskóla. Í heimsókninni fóru nemendur í vettvangsferð í skólastofur, bókasafn, Íþróttamiðstöð og Skólasel. Heimsóknin er hluti af margvíslegum verkefnum Brúum bilið samstarfsverkefni Sandgerðisskóla og leikskólans Sólborgar. Nemendur stóðu sig mjög vel og voru áhugasamir um skólann eins og sjá má á meðfylgjandi myndunum.