- Fréttir
- Skólastarfið
- Nemendur og Foreldrar
- Myndir
- Starfsfólk
- Um Skólann
Skóladagatal fyrir skólaárið 2026-2027 hefur verið samþykkt í Skólaráði og Fræðsluráði.
Hægt er að kynna sér það og prenta út með því að smella á myndina.
Samkvæmt kjarasamningi sveitarfélaga við Kennarasamband Íslands skulu skóladagar nemenda vera 180 á tímabilinu 20. ágúst til 10. júní.
Fjólubláir dagar: Sérstakir undirbúningsdagar (starfsdagar) kennara á starfstíma skóla eru fimm og utan starfstíma nemenda eru þeir átta á skólaárinu. Eftirskólaúrræðin Skólasel og Skýið eru lokuð á fjólubláum dögum.
Gulir dagar: Skertir nemendadagar/uppbrot. Nemendur dvelja skemur í skólanum en venjulegt er.
Bláir dagar: Haustfrí 23. og 26. október, jólafrí 21. – 30. desember, vetrarfrí 22. og 23. febrúar, páskafrí 22. - 24 mars. Skólasel og Skýið eru lokuð á bláum dögum.
Appelsínugulur dagur: Árshátíð hjá 7. – 10. bekk er 18. mars
Grænir dagar: eru uppbrotsdagar, sem eru nýttir fyrir óhefðbundið skólastarf en upphaf og lok skóladags er hefðbundið.
Skólaárið er eitt tímabil sem lýkur með vitnisburði á skólaslitum 8. júní.
|
Skólastræti | 245 Suðurnesjabæ Sími á skrifstofu: 425 3100 Netfang: grunnskoli@sandgerdisskoli.is |
Skrifstofa skólans er opin frá |
Tilkynningar um leyfi eða veikindi nemenda: 425 3100 / grunnskoli@sandgerdisskoli.is