Skóladagatal 2024-2025

Skóladagatal fyrir skólaárið 2024-2025 hefur verið samþykkt í fræðsluráði. Hægt er að kynna sér það og prenta út með því að smella á myndina.

Skóladagatal 2024-2025

Samkvæmt kjarasamningi sveitarfélaga við Kennarasamband Íslands skulu skóladagar nemenda vera 180 á tímabilinu 20. ágúst til 10. júní.

Sérstakir undirbúningsdagar kennara á starfstíma skóla eru fimm og skulu ákveðnir af skólastjóra í samráði við kennara með hliðsjón af kjarasamningum.

Undirbúningsdagar kennara utan starfstíma nemenda eru 8.

Fjólubláir dagar: Undirbúningsdagar á skólaárinu. Fimm dagar áður en skóli hefst, fimm á skólaárinu og þrír eftir skólaslit. Eftirskólaúrræðin Skólasel og Skýið eru lokuð á fjólubláum dögum.

Gulir dagar: Skertir nemendadagar/uppbrot. Nemendur dvelja skemur í skólanum en venjulegt er.

Bláir dagar: Haustfrí 25. og 28. október, jólafrí 23. desember – 31. desember, vetrarfrí 17. og 18. febrúar, páskafrí 14. – 16. apríl. Skólasel og Skýið eru lokuð á bláum dögum.

Appelsínugulir dagar: 10. apríl og 3. júní teljast tvöfaldir nemendadagar. 10. apríl er hefðbundinn dagur og árshátíð eldri, 3. júní er hefðbundinn kennsla og skólaslit.

Grænir dagar: eru uppbrotsdagar, sem eru nýttir fyrir óhefðbundið skólastarf en upphaf og lok skóladags er hefðbundið.

Skólaárið er eitt tímabil sem lýkur með vitnisburði á skólaslitum 3. júní.