Skóladagatal 2023-2024

Skóladagatal fyrir skólaárið 2023-2024 hefur verið samþykkt í fræðsluráði. Hægt er að kynna sér það og prenta út með því að smella á myndina.

Skóladagatal 2023-2024

Samkvæmt kjarasamningi sveitarfélaga við Kennarasamband Íslands skulu skóladagar nemenda vera 180 á tímabilinu 20. ágúst til 10. júní.

Sérstakir undirbúningsdagar kennara á starfstíma skóla eru fimm og skulu ákveðnir af skólastjóra í samráði við kennara með hliðsjón af kjarasamningum.

Undirbúningsdagar kennara utan starfstíma nemenda eru 8.

Fjólubláir dagar: Undirbúningsdagar á skólaárinu. Fimm dagar áður en skóli hefst, fimm á skólaárinu og þrír eftir skólaslit. Eftirskólaúrræðin Skólasel og Skýið eru lokuð á fjólubláum dögum.

Gulir dagar: Skertir nemendadagar/uppbrot. Nemendur dvelja skemur í skólanum en venjulegt er.

Rauðir dagar: Haustfrí 20. og 23. október, jólafrí 21. desember – 2. janúar, vetrarfrí 19. og 20. febrúar, páskafrí 25. – 27. mars. Skólasel og Skýið eru lokuð á rauðum dögum.

Appelsínugulir dagar: 21. mars og 4. júní teljast tvöfaldir nemendadagar.

Bláir dagar: eru uppbrotsdagar, sem eru nýttir fyrir óhefðbundið skólastarf en upphaf og lok skóladags er hefðbundið.

Skólaárið er eitt tímabil sem lýkur með vitnisburði á skólaslitum 4. júní.