Skíðaferð í Bláfjöll

Nú í vikunni fóru nemendur í 7. – 10. bekk á skíði í Bláfjöll. Ferðin var á vegum nemendaráðs en ráðið sá um skipulagningu og undibúning. Skíðafærið var eins og best verður á kosið, veðrið mjög gott og skemmtu nemendur sér mjög vel. 

Frábær ferð í alla staði og á nemendaráð hrós skilið fyrir gott skipulag.