Símafriður í Sandgerðisskóla

Í Sandgerðisskóla er símafriður allan skóladaginn. Markmiðið er að skapa góðan náms- og vinnufrið, efla einbeitingu og virkni nemenda og skapa meira rými fyrir samskipti, leik og samveru.

Reglur Sandgerðisskóla eru í samræmi við áherslur mennta- og barnamálaráðuneytisins um símafrið í grunnskólum og fyrirhugaða reglugerð um notkun síma og snjalltækja á skólatíma.

Reglur um síma og snjalltæki

  • Nemendur eru hvattir til að skilja síma og önnur persónuleg snjalltæki eftir heima.
  • Komi nemandi með síma í skólann skal vera slökkt á honum eða hann á flugstillingu og geymdur í tösku nemandans allan skóladaginn.
  • Sími á ekki að vera í vasa nemanda, á borði eða annars staðar þar sem hann er aðgengilegur.
  • Símafriður gildir í kennslustundum, frímínútum, matsal og í öðru starfi á skólatíma.
  • Símafriður gildir einnig á skólalóð og á leið milli skólans og íþróttamannvirkja þegar sú ferð er hluti af skólastarfi.
  • Sömu reglur gilda um heyrnatól, snjallúr og önnur persónuleg snjalltæki sem geta tekið við símtölum, skilaboðum eða tilkynningum.
  • Símar og önnur persónuleg snjalltæki sem nemendur koma með í skólann eru á ábyrgð nemenda og foreldra/forráðamanna.
  • Undantekningar frá reglunum eru aðeins gerðar vegna sérstakra þarfa nemanda og í samráði við stjórnendur skólans.

 

Ef reglum um símafriði er ekki fylgt

Fyrsta skref
Nemandi fær áminningu og tækifæri til að ganga frá símanum/tækinu í tösku samkvæmt reglum skólans.

Endurtekið brot
Ef nemandi brýtur reglurnar aftur skal hann afhenda símann/tækið. Síminn er geymdur á skrifstofu skólans til loka skóladags nemandans og atvikið skráð í Mentor. Nemandi getur sótt símann/tækið að skóladegi loknum.

Ítrekuð brot
Þurfi ítrekað að taka síma eða annað snjalltæki af nemanda eru foreldrar/forráðamenn beðnir um að sækja tækið í skólann.

Við ítrekuð brot eru nemandi og foreldrar/forráðamenn jafnframt boðaðir á fund þar sem farið er yfir stöðuna og fundnar leiðir í sameiningu til að tryggja að reglum um símafriði sé fylgt. Fundur og niðurstaða hans eru skráð í Mentor.

Ef nemandi neitar að afhenda tæki
Ef nemandi neitar að afhenda síma eða annað snjalltæki þegar starfsmaður óskar eftir því er málinu vísað til skólastjórnanda og haft samband við foreldra/forráðamenn.

Samskipti við heimili á skólatíma

Þurfi nemandi að hafa samband heim á skólatíma fær hann leyfi starfsmanns til að hringja hjá ritara. Foreldrar/forráðamenn geta að sama skapi komið áríðandi skilaboðum til barna sinna í gegnum skrifstofu skólans í síma 425-3100

Sameiginleg ábyrgð

Gott samstarf heimila og skóla er mikilvægur þáttur í því að reglur um símafrið nái tilgangi sínum. Við hvetjum foreldra og forráðamenn til að styðja við reglurnar og ræða við börnin sín um mikilvægi þess að virða símareglur á skólatíma.

Símafriður snýst um að skapa rými fyrir aukinn félagsþroska, nám, samskipti og samveru.