Sérdeildin Ásgarður hlýtur styrk

Sérdeildin Ásgarður, sem er fyrir nemendur með einhverfu og skyldar raskanir, var svo einstaklega heppin að fá styrk frá Blue Car Rental í kjölfarið af Góðgerðar-Festinu þeirra sem var haldið um síðustu helgi. Fjárhæðin mun nýtast til þess að gera skynörvunarherbergið okkar ennþá betra ásamt því að keyptur verður tækjabúnaður/leikföng sem nýtast nemendum okkar. Nemandi í 7.bekk, sem tilheyrir deildinni tók á móti styrkveitingunni ásamt Sigrúnu deildarstjóra Ásgarðs.

Við í Sandgerðisskóla þökkum kærlega fyrir þessa rausnarlegu gjöf, hún mun nýtast nemendum okkar vel.

Styrkur_Ásgarður 

Styrkur_Ásgarður