Sandgerðisskóli formlega orðinn UNESCO-skóli

Bylgja Baldursdóttir skólastjóri og Sigrún Svafa Ólafsdóttir, verkefnastjóri fræðslumála hjá Reykjan…
Bylgja Baldursdóttir skólastjóri og Sigrún Svafa Ólafsdóttir, verkefnastjóri fræðslumála hjá Reykjanes jarðvangi,

Sandgerðisskóli hefur hlotið viðurkenningu sem UNESCO-skóli. Viðurkenningin er staðfesting á því öfluga starfi sem unnið hefur verið innan skólans með sjálfbærni, heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna og alþjóðlega samvinnu að leiðarljósi.

Undanfarin misseri hefur skólinn unnið að fjölbreyttum UNESCO-verkefnum af miklum metnaði, meðal annars með skapandi samþættingu heimsmarkmiðanna í samfélagsfræði, náttúrufræði, listum og verkgreinum. 

Sandgerðisskóli er afar stoltur af þessum áfanga og hlakkar til áframhaldandi samstarfs innan UNESCO-skólanetsins og Reykjanes jarðvangs.

Smellið á mynd til að sjá hvað er að vera UNESCO skóli

Hvað er að vera Unesco skóli