Sandgerðisskóli fær snjallsjónauka að gjöf

Valdís Hildur, aðstoðarskólastjóri ásamt Sigrúnu Svöfu, verkefnastjóra fræðslumála hjá Reykjanes  ja…
Valdís Hildur, aðstoðarskólastjóri ásamt Sigrúnu Svöfu, verkefnastjóra fræðslumála hjá Reykjanes jarðvangi.

Sandgerðisskóli fékk á dögunum glæsilegan snjallsjónauka að gjöf frá Reykjanes jarðvangi. Sigrún Svafa Ólafsdóttir, verkefnastjóri fræðslumála hjá Reykjanes jarðvangi í samstarfi við GeoCamp Iceland, afhenti sjónaukann. Hann er einn af ellefu sjónaukum sem gefnir verða grunnskólum innan Reykjanes jarðvangs.

Sjónaukinn er af gerðinni Seestar S30 Pro Total Solar Eclipse Edition og með honum er meðal annars hægt að skoða sólina, tunglið, reikistjörnur og aðra hluti himingeimsins. Einnig má nota hann til að fylgjast með fuglum, dýrum og ýmsu öðru í náttúrunni. Hægt er að taka bæði ljósmyndir og myndbönd með sjónaukanum og tengja hann við snjalltæki.

Gjöfin er að frumkvæði Reykjanes jarðvangs og var möguleg með veglegum styrkjum frá Kadeco og atNorth gagnaverinu. Sævar Helgi Bragason, Stjörnu-Sævar, hefur einnig lagt sitt af mörkum til verkefnisins, enda er honum mikið í mun að opna undraheim vísindanna fyrir skólabörnum.

Í framhaldinu mun Reykjanes jarðvangur, í samstarfi við Sævar Helga, skipuleggja námskeið fyrir kennara um notkun sjónaukans. Markmiðið er að hann nýtist sem best í fjölbreyttri og lifandi kennslu við skólann.

Við í Sandgerðisskóla erum afar þakklát fyrir þessa frábæru gjöf og hlökkum til að nýta sjónaukann með nemendum okkar.