Samskiptavika - Bóka foreldraviðtöl

Vikuna 23. janúar - 27. janúar eru samskiptadagar í Sandgerðisskóla. Markmið með samskiptadegi er m.a að foreldrar, nemandi og kennari ræði saman um náms- og félagslega stöðu nemandans og að tekin sé sameiginleg ákvörðun um næstu markmið hans.

Tímabókanir eru með rafrænum hætti í gegnum Mentor kerfið.

  • Hægt er að byrja að skrá sig í viðtöl þriðjudaginn 17. janúar.
  • Lokadagur skráningar er fimmtudagurinn 19. janúar.

Við biðjum ykkur því um að fara inn á www.infomentor.is  frá og með morgundeginum og bóka ykkar viðtalstíma þar. Þeir sem eiga fleiri en eitt barn í skólanum eru hvattir til þess að skrá sig sem allra fyrst, eftir að skráning hefst til að fá viðtalstíma í röð hjá mismunandi kennurum. Ykkur er bent á að hafa samband við umsjónarkennara ef þess þarf.

Bóka foreldraviðtöl - Kennslumyndband fyrir aðstandendur