Samskiptadagur/tímabókanir

Miðvikudaginn 7. febrúar er samskiptadagur í Sandgerðisskóla. Markmið með samskiptadegi er m.a að foreldrar, nemandi og kennari ræði saman um náms- og félagslega stöðu nemandans og að tekin sé sameiginleg ákvörðun um næstu markmið hans.

Tímabókanir eru með rafrænum hætti í gegnum Mentor kerfið.

Hægt er að byrja að skrá sig í viðtal frá 1. febrúar og

lokadagur skráningar er mánudagurinn 5. febrúar 2024.

Við biðjum ykkur því um að fara inn á www.infomentor.is og bóka ykkar viðtalstíma þar.

Þeir sem eiga fleiri en eitt barn í skólanum eru hvattir til þess að skrá sig sem allra fyrst, eftir að skráning hefst til að fá viðtalstíma í röð hjá mismunandi kennurum. Ykkur er bent á að hafa samband við umsjónarkennara ef þess þarf.

Að panta foreldraviðtal:

Smellið hér til að sjá leiðbeiningar frá Mentor,