Samskiptadagur 7. október

Miðvikudaginn 7. október er samskiptadagur í Sandgerðisskóla. Þennan dag er ekki hefðbundinn skóladagur og mæta nemendur því aðeins í bókað viðtal ásamt foreldrum/forráðamönnum sínum.

Markmið samskiptadagsins er meðal annars að nemandi, foreldrar/forráðamenn og kennari ræði saman um námslega og félagslega stöðu nemandans og taki sameiginlega ákvörðun um næstu markmið hans.

Foreldrar/forráðamenn bóka viðtalstíma í gegnum Mentor. Opnað verður fyrir bókanir miðvikudaginn 30. september og þarf að vera búið að bóka viðtal fyrir lok dags 2. október.

Þeir forráðamenn sem fá þjónustu túlks í viðtalinu fá úthlutaðan tíma frá umsjónarkennara.

Foreldrar/forráðamenn sem óska eftir viðtali við fag-, list- eða verkgreinakennara eru beðnir um að hafa samband við skrifstofustjóra skólans í síma 425-3100 eða með tölvupósti á ritari@sandgerdisskoli.is.

Skólasel og Skýið verða opin frá kl. 08:15 fyrir þá nemendur sem þar eru skráðir.