- Fréttir
- Skólastarfið
- Nemendur og Foreldrar
- Myndir
- Starfsfólk
- Um Skólann
Þann 30. apríl fóru nemendur í 10. bekk ásamt umsjónarkennurum, stuðningsfulltrúum og námsráðgjafa í hina árlegu Reykjavíkurferð. Dagurinn var bæði fræðandi og skemmtilegur og gaf nemendum tækifæri til að kynnast fjölbreyttum starfsvettvangi og menningu höfuðborgarinnar.
Fyrsti viðkomustaður dagsins var Alþingi þar sem hópurinn settist á þingpalla og fylgdist með þingfundi. Að lokinni heimsókn á Alþingi var haldið í Borgarholtsskóla þar sem nemendur fengu að skoða aðstöðu til náms í bílgreinum og málmiðngreinum. Næst lá leiðin í Skólavörðuholtið þar sem nemendur heimsóttu garðinn við Listasafn Einars Jónssonar og Hallgrímskirkju. Margir nýttu tækifærið og fóru upp í turninn til að njóta útsýnisins yfir borgina.
Eftir hádegi heimsótti hópurinn Tækniskólann. Þar fengu nemendur kynningu á fjölbreyttum námsleiðum, félagsstarfi og aðstöðu skólans. Þá var haldið í Seðlabanka Íslands þar sem tekið var á móti hópnum með fræðslu, glærusýningu og hressingu. Í lok heimsóknarinnar tóku nemendur þátt í kahoot-leik þar sem nemendur stóðu sig afar vel og sýndu að þau höfðu hlustað af athygli um hlutverk bankans.
Síðasti viðkomustaður dagsins var RÚV. Þar fengu nemendur bæði framsögn og leiðsögn um stúdíó, búningasafn, förðunarrými og fréttastofu sjónvarps. Einnig var þeim sýnt hvernig tæknimenn og smiðir vinna að fjölbreyttum verkefnum á bak við tjöldin. Sigrún Hermannsdóttir, viðburða- og þjónustustjóri RÚV, fylgdi hópnum og hrósaði nemendum fyrir áhuga og góða þátttöku.
Alls staðar var tekið einstaklega vel á móti hópnum og stóðu nemendur sig með stakri prýði og voru skólanum og sjálfum sér til sóma. Að loknum fróðlegum og skemmtilegum heimsóknum endaði dagurinn á notalegri máltíð þar sem allir nutu samverunnar. Smellið hér til að sjá myndir frá deginum.

|
Skólastræti | 245 Suðurnesjabæ Sími á skrifstofu: 425 3100 Netfang: grunnskoli@sandgerdisskoli.is |
Skrifstofa skólans er opin frá |
Tilkynningar um leyfi eða veikindi nemenda: 425 3100 / grunnskoli@sandgerdisskoli.is