Podcast Sandgerðisskóla

Á þessu skólaári var Podcast val í boði fyrir nemendur í 8. – 10. bekk.

Nemendur tóku upp nokkra þætti þar sem meðal annars var tekið viðtal við Tomma Knúts um lífið innan girðingar á gamla varnarliðssvæðinu á Keflavíkurflugvelli. Einnig eru þættir um kvikmyndir og tölvuleiki, og svo var fjallað um boltaíþróttir í Suðurnesjabæ, þar sem meðal annars var tekið viðtal við handaboltaþjálfara.

Hægt að hlusta á þættina á streymisveitu Spotify, smellið hér.