- Fréttir
- Skólastarfið
- Nemendur og Foreldrar
- Myndir
- Starfsfólk
- Um Skólann
Nemendaráðið ætlar að bjóða skólapeysur til sölu núna fyrir jólin. Peysurnar eru með sama sniði og í fyrra. Boðið verður upp á að koma í skólann, máta og panta peysur á samskiptadeginum miðvikudaginn 7. október frá kl. 8:15 til 15:30.
Peysurnar eru af gerðinni TH Phoenix, svartar með hvítri áletrun og bleikar með hvítri áletrun, eins og sjá má á meðfylgjandi myndum.
Öllum nemendum skólans, frá 1. til 10. bekkjar, býðst að kaupa peysu. Verðið er 6.500 kr. fyrir eina peysu, 12.000 kr. fyrir tvær peysur og 17.000 kr. fyrir þrjár peysur. Einnig verður boðið upp á prjónahúfu með merki skólans á 3.000 kr.
Nemendaráð verður með posa og hægt verður að greiða fyrir peysurnar með korti, peningum eða með millifærslu inn á reikning nemendaráðsins 0147-15-210102, kt. 671088-5229. Mikilvægt er að setja nafn nemanda í skýringu greiðslu og senda staðfestingu á netfangið ornaevar@sandgerdisskoli.is.
Einnig er hægt að panta peysu með því að senda tölvupóst á ornaevar@sandgerdisskoli.is. Þar þurfa að koma fram upplýsingar um stærð, nafn barns, bekk og hvaða nafn á að prentast á peysuna. Á sama netfangi er einnig hægt að fá nánari upplýsingar.
Athygli er vakin á því að greiða þarf fyrir peysurnar í síðasta lagi föstudaginn 16. október. Eftir þann dag verður ekki hægt að panta eða greiða fyrir peysur. Stefnt er að því að peysurnar verði afhentar fyrir jólafrí.
|
Skólastræti | 245 Suðurnesjabæ Sími á skrifstofu: 425 3100 Netfang: grunnskoli@sandgerdisskoli.is |
Skrifstofa skólans er opin frá á föstudögum til kl. 14:00 |
Tilkynningar um leyfi eða veikindi nemenda: 425 3100 / grunnskoli@sandgerdisskoli.is